Bankaráðsmaður tjáir sig

Stjórnmálafræðiprófessor sem á sæti í bankaráði Seðlabanka Íslands skrifar greinarkorn í Morgunblaðið í dag, laugardag. Hann telur brottvikningu Seðlabankastjóra stjórnast af "hefndarþorsta". 800px-GissurarsonOddssonHann minnist raunar ekki á að ríkisstjórnin vill skipta um alla þrjá bankastjóra bankans, málsvörn hans snýr að fyrrverandi Forsætisráðherra, sem settist í stól Seðlabankastjóra. Hann telur að með því að víkja forsætisráðherranum og flokksleiðtoganum fyrrverandi úr stóli bankastjóra, sé vegið að sjálfstæði Seðlabanka Íslands.

Bankaráðsmaðurinn er væntanlega ekki sammála því mati fjölmargra hérlendis og erlendis að stofnunin er rúin trausti og að peningamálastefna bankans beið skipbrot.

Hann bendir raunar á að Davíð Oddsson hafi varað oft við örum vexti bankakerfisins, en klykkir út með þessu dásamlegu gullkorni:

Davíð fékk hins vegar lítt að gert, vegna þess að með lagabreytingu 1998 var Fjármálaeftirlitið fært undan Seðlabankanum. Heimildir og skyldur til að fylgjast með viðskiptabönkunum hurfu nær allar. Eftir urðu smáverkefni eins og lausafjárskýrslur og gengisjafnaðarreglur.

Ja hérna hér! Prófessorinn er búinn að sitja í bankaráðinu árum saman og hlýtur að vita hvert hlutverk bankans er. Smáverkefni...?!  (Raunar rekur mig minni til að þegar ráðherrann tilkynnti þjóð um nýja starfið hafði hann uppi orð um það að þetta væri nú rólegheitavinna, og að honum gæfist meiri tómstundir en áður. Kannski taldi Davíð þá að þetta væru mestmegnis smáverkefni.)

Hvað gerir eiginlega bankaráð Seðlabankans? Þarf sjö manna ráð til að hafa yfirumsjón með "smáverkefnunum"?  Hefur stjórnmálaprófessorinn og bankaráðsmaðurinn kannski ekkert vit á því sem Seðlabankinn á að sinna? Hann horfir alveg fram hjá t.d. ofur-stýrivaxtastefnunni sem sló ekkert á verðbólgu og hélt uppi alltof háu gengi krónunnar og ýtti einstaklingum og fyrirtækjum í lán í erlendri mynt, sem voru mun ódýrari en íslensk. Baneitraður kokkteill eins og komið hefur í ljós. Svo ekki sé talað um jöklabréfaósköpin, sem ekki sér fyrir endann á hvaða áhrif munu hafa.

Situr þessi maður virkilega enn í bankaráði Seðlabanka Íslands?


mbl.is Ingimundur baðst lausnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Helstu merkisberar sjálfstæðisflokksins hafa eytt meiri tíma og bleki í að harma og rægja uppsögn seðlabankastjóra, vælt undan pólitískum brottrekstri manns sem ráðinn var á pólitískum forsendum , en allra þeirra 14.000 Íslendinga sem misst hafa vinnuna skv. síðustu frétturm.  Flokkur fólksins eða flokkur Davíðs, ekki þarf fleiri vitna við.  Ég skammast mín fyrir að hafa verið flokksbundinn sjálfstæðismaður.

Bjorn Jonasson (IP-tala skráð) 7.2.2009 kl. 16:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband