Svaka lokametrar hjá Framsókn!

Hæ Sigmundur Davíð,
Til hamingju með úrslitin, frábærir lokametrar hjá valkyrjunum í Framsókn! En hérna, sko, ég vil ekki vera með nein leiðindi, bara ALLS EKKI, en bara, hvernig sko, hvað er málið með þessa mosku? Eiga ekki trúfélög að fá að byggja sér hús? Ég meina, lögleg, viðurkennd trúfélög? Eða snýst þetta um að Sveinbjörg og Guðfinna vilji finna aðra og betri lóð? Þær hafa aldrei sagt það sko. 
Þú kannski sendir smá línu á fjölmiðla, bara svona eftir helgi. Það virðist vera einhver misskilningur í gangi að þið séuð á móti Félagi múslima. Virkar dáldið 'off', að einn flokkur sé að berja á einu litlu 500 manna trúfélagi. Þú veist, sumir gætu haldið að þið væruð, tja, bara að mismuna trúfélögum?! Það er ekki þannig, ha? 
ok bæ! ♥

 

Screen Shot 2014-06-01 at 11.07.24 


mbl.is Sveinbjörg þakkaði fjölmiðlum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hrólfur Þ Hraundal

Sæll Einar Karl og fyrirgefðu afskiptasemina, þar sem ég er ekki Sigmundur Davíð og ekki einu sinni framsóknarmaður, heldur svarblátt íhald og hef skömm á múslímum af karl kyni og vorkenni konum þeirra  og dætrum.

Auðvita eru til öfga ofbeldismenn í öllum trúfélögum en Múhameð smíðaði sína sérhagsmuna trú með innbyggðu ofbeldi og virðinga leysi fyrir konum, stelpum og lífi annarra en sjálfs síns.        

Hrólfur Þ Hraundal, 1.6.2014 kl. 20:39

2 Smámynd: Einar Karl

Sæll Hrólfur,

Athugasemdadálkurinn er opinn fleiri en Sigmundi Davíð, þó það nú væri. Ekki þekkki ég gjörla kenningar Múhameðs spámanns, sjálfsagt er hægt að túlka þær og rangtúlka, líkt og kristnir hafa rifist og deilt um boðskap guðssonarins linnulítið nánast frá því hann sveif til himna. Vissulega eru samfélög í múslimaheimi aftar á merinni hvað varðar jafnrétti milli kynja, en vorum við ekki á sama stað fyrir einni til tveimur öldum síðan? Held að þarna komi nú annað og meira til en hvaða spámann menn telja mestan og bestan. Reyndar líta múslimar á Jesú Krist sem mjög merkan spámann og guð þeirra er sá hinn sami og kristnir biðja til.

Heimasíðu Félags múslima má finna á netinu og þar er fróðleikur um íslam.

Mér sýnist nú þetta alveg geta verið mannbætandi, ekki síður en margt í kristinni trú og heimspeki.

Einar Karl, 1.6.2014 kl. 22:23

3 identicon

Óttalegur vælukjói ertu Einar Karl.Það sem Sveinbjörg sagði um Moskuna og það viðkomandi henni,hefir verið snúið uppí andhverfu sína af vælukjóum líkum þér. Áfram Sveinbjörg.

Númi (IP-tala skráð) 5.6.2014 kl. 00:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband