Hatursáróður á Moggabloggi

Ég hef ákveðið að endurvekja a.m.k. um sinn þessa bloggsíðu úr dvala til að skrifa um mikilvægt mál.

Ég rakst hér á svo svæsinn hatursáróður að mér blöskraði og tel fulla ástæðu til vara við þeim málflutningi sem viðgengst hér á sumum bloggsíðum.

Þegar nasistar vildu afmennska gyðinga og magna upp andúð gegn þeim og hatur, kölluðu þeir þá andstyggilegum ókvæðisorðum eins og afætur og sníkla.

Þegar Hútú-leiðtogar vildu magna upp hatur gegn Tútsíum í Búrúndí og Rúanda voru notuð orð eins og afætur og sníklar.

OG þessi orð - afætur og sníklar - eru notuð nú fyrir nokkrum dögum í bloggpistli á síðu Valdimars Jóhannessonar, í grein sem hann þýddi og birti af amerískri hatursboðskapssíðu.  Á síðu Valdimars eru þessi orð notuð um múslima. Þau eru notuð til að kynda undir ótta og óvild. Þau eru notuð til að auka HATUR.

Ég reyndi að rökræða við Valdimar í athugasemdum við pistil hans en hann nennti ekki að ræða við mig og eyddi út athugasemdum frá mér. Svo gerist það að bloggarinn Halldór Jónsson endurbirti sömu ljótu greinina.

Valdimar Jóhannesson og Halldór Jónsson eru að nota bloggsíður sínar hér á Moggabloggi til að dreifa hreinum og ómenguðum hatursáróðri. Þetta eru bloggarar sem fleiri hundruð lesa á hverjum degi.

Valdimar og Halldór dreifa hatursáróðri. Þeir boða hatur. Skrif þeirra eru líklega brot á 233. grein hegningarlaga.

Ég vil ekki beita mér fyrir því að þagga niður í rasistum og hatursveitum, en slík skrif eiga heldur ekki að fá að birtast athugasemdalaust.

Morgunblaðið verður svo sjálft að gera upp við sig hvort slíkur hatursáróður sé í lagi á bloggsíðum mbl. 

valdimar

Valdimar H. Jóhannesson

 

halldor

Halldór Jónsson

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæll Einar Karl - sem og aðrir gestir, þínir !

Einar minn !

Því miður: eru þeir Valdimar og Halldór, ekkert að gantast með hlutina.

Í Heimsyfirráða fyrirgangi Kommúnista og Nazizta forðum, var alls konar brellum beitt Einar Karl - og hið sama: eru Múhameðskir að iðka, nú um stundir.

Hatur: / ekki hatur, hefir ekkert með þessa umræðu að gera Einar minn, reginmisskilningur þinn sem annarra, sem gleypið fagurgala Kóran liðsins hráan, upp á hvern einasta dag.

Hvernig: skyldi annarrs standa á því Einar Karl - að Indverskir Hindúar (hjá þeim: skipta Guðir og Gyðjur Tugum og Hundruðum Þúsunda), svo og Bhúddistar frá Víetnam og Thailandi t.d., geta aðlagast íslenzku, sem öðrum Vestrænum samfélögum, með öllu hnökralaust ?

Jú - þeir eru ekkert að troða sínum trúarritum eða venjum upp í kok gestgjafa sinna, sem verðandi / eða orðna samlanda sína, síðuhafi góður.

Horfðu á málin: frá öllum áttum Einar minn - ekki bara Höfuðáttunum, og þá muntu skilja betur, hvernig í hlutunum raunverulega liggur.

Með beztu kveðjum - af Suðurlandi /  

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 6.9.2015 kl. 23:40

2 Smámynd: Einar Karl

Óskar Helgi Helgason:

finnst þér orðræða nasista  um annað fólk Í LAGI?

Einar Karl, 6.9.2015 kl. 23:44

3 identicon

Sæll: á ný Einar Karl !

Já - alveg fyllilega, enda samhengið augljóst.

T.d.: voru þeir Hitler og Al- Husseini Jérusalem Stórmúfti, hinir mestu mátar á sinni tíð, Einar minn.

Með þeim sömu kveðjum - sem fyrri /

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 6.9.2015 kl. 23:57

4 Smámynd: Einar Karl

Ja hérna Óskar. Ég er orðlaus.

Einar Karl, 7.9.2015 kl. 00:03

5 Smámynd: Einar Karl

Þú gerir þér grein fyrir því Óskar Helgi að þú varst að segja að þér finnst Í LAGI að Adolf Hitler og nasistar skyldu kalla gyðinga afætur og sníkla ... ?  

Ertu nasisti, Óskar Helgi?  Eða ertu bara hálfviti sem veist ekki hvað þú skrifar?

Einar Karl, 7.9.2015 kl. 00:06

6 Smámynd: Eyjólfur G Svavarsson

Ég tek undir með Óskari. Valdimar. og Halldóri.

Eyjólfur G Svavarsson, 7.9.2015 kl. 00:09

7 Smámynd: Einar Karl

Eyjólfur,
þú ert líka að taka undir með Adolf Hitler og Anders Breivik.

Einar Karl, 7.9.2015 kl. 00:15

8 identicon

Komið þið sælir - að nýju !

Einar Karl !

Nei - ekki er ég nú Nazisti Einar minn: enda væri slíkt á algjöra skjön við yfirlýstan stuðning minn, við Rússnesku þjóðina, í viðureign hennar, við Bandaríkin og Evrópusambandið t.d.- sem og, í öðru tilliti, Einar minn.

Hins vegar - tel ég mig til Falangistanna Spænsku / fylgismanna Francós Ríkismarskálks, sem og þeirra Líbönsku Falangista Gemayel feðganna, svo og Kúómingtang hreyfingar:: Chiangs kai- Shek, austur á Taíwan (Formósu) aukinheldur: hvorutveggju lausir við dilkadrátt fólks, eftir tilteknum litarhætti eða uppruna manna yfirleitt, síðuhafi góður.

Eyjólfur G !

Þakka þér fyrir: drengilegan stuðninginn sem oftar, mæti drengur.

Ekki síðri kveðjur: hinum fyrri og áður / 

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 7.9.2015 kl. 00:22

9 Smámynd: Jóhann Kristinsson

Þá er fyrrverandi þöggunarráðherra Einar Karl risinn upp úr dvala sinum, en ég veit að þessir menn sem hann ásækjir í þessum pistli, láta níðingsorð Þöggunnarraðherrans sem vind um eyru þjóta.

Halldór Og Valdimar ég hef ekki lesið neinn hatursáróður í ykkar pistlum hér á mbl.is blogginu.

Kveðja frá Houston

Jóhann Kristinsson, 7.9.2015 kl. 02:54

10 Smámynd: Jósef Smári Ásmundsson

Ég tek hins vegar undir með Einari Karli. Mér finnst þessi hatursorðræða vera ömurleg og fagna því að einhver hér á moggablogginu hafi dug til að mótmæla.

Jósef Smári Ásmundsson, 7.9.2015 kl. 06:16

11 Smámynd: Jóhann Elíasson

Það var EKKERT í þessum pistli Valdimars sem getur flokkast undir HATURSÁRÓÐUR en kannski mætti síðuhaldari og aðrir "Rétttrúnaðarmenn" aðeins fara að hugsa sinn gang, því þeir vilja meina að ALLIR sem ekki leggjast hundflatir fyrir boðskap þeirra séu rasistar og með  hatursáróður.

Jóhann Elíasson, 7.9.2015 kl. 07:14

12 Smámynd: Ómar Bjarki Kristjánsson

Auðvitað er þetta alveg hrikalegt.

Það er svo umhugsunarvert út af fyrir sig að forsprakkarnir, - sjá ekkert athugunarvert við orðræðu sína.

Ýmislegt bendir  þá til að þeir séu alveg sannfærðir umtalaðir istar.

Eg held sko að vandamálið sé m.a., - að allt of fáir skamma þessa menn fyrir háttalag sitt.  

Ómar Bjarki Kristjánsson, 7.9.2015 kl. 08:33

13 identicon

Takk fyrir þennan pistil Einar Karl. Hef sjálfur tilkynnt halldór til ritstjórnar mbl.is fyrir nasisma og yfirgengilegan hatursáróður og vona ég að sem flestir geri það líka.

Anton (IP-tala skráð) 7.9.2015 kl. 08:51

14 Smámynd: Ómar Bjarki Kristjánsson

 Efast um að það dugi.   Þeir njóta sérstakrar velvildar mogga og LÍÚ þessir menn.

Eg held að það eina sem dugi á svona peyja sé að skamma þá duglega.  Skamma þá eins og hunda.

Það sem ersvo sérlega umhugsunarvert er, - að það er eins og hroðaskrifin stuði frekar fáa.

Ómar Bjarki Kristjánsson, 7.9.2015 kl. 09:02

15 identicon

Einar Karl. Telur þú að margir taki mark á þessum bjánum? Ég held að þeir hafi ekki mikil áhrif, því pistlar þeirra eru svo vitlausir að menn þurfa að vera verulega greindarskertir til að taka mark á þeim.

Jónas Kr (IP-tala skráð) 7.9.2015 kl. 09:15

16 identicon

Komið þið sælir - sem fyrr !

Anton og Jónas Kr. !

Fyrir það fyrsta: væri nú ekkert úr vegi, að þið kæmuð fram með ykkar kárínur, undir fullum nöfnum: ykkar - ef nokkur tök væru á.

Vandaðar greinargerðir: sem aðrar umfjallanir þeirra Valdimars og Halldórs eru mjög mikilvægar / í brýnu mótvægi við þann skefjalausa áróður ýmissa, fyrir óboðlegri útþenzlu Heimsvalda- og yfirgangs rosta Múhameðskra, og ættuð þið fremur, að þakka þeim Valdimar Jóhannessyni og Halldóri Jónssyni fyrir þeirra varnaðarorð og staðfestu - fremur en hitt.

Klaganir þínar Anton - til Ritstjórnar Mbl. munu algjörlega missa marks, í ljósi þeirrar einföldu staðreyndar, að þeir Valdimar og Halldór eru einungis, að leitazt við, að uppfræða hina fáfróðu:: ykkur þar með talda, drengir.

Æskilegast væri - að enn fleirri, legðu til þarfrar og opinskárrar umræðunnar, um þá miklu vá, sem veröldin stendur frammi fyrir, af yfirgangi og frekju Múhameðskra víðsvegar, Anton og Jónas Kr. !

Þöggun hvers konar - leiðir aðeins til verri tjóna einna, piltar.

Sízt lakari kveðjur - hinum fyrri, og áður / 

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 7.9.2015 kl. 10:52

17 identicon

Einar, skrifaði smá pistil um þig, á bloggi Halldórs.
Anton, búinn að klaga þig fyrir mömmu þinni. Þú átt að vera í tölvubanni.
Ómar, hvernig virka gúmmístígvélin í gæsagangi?
Jónas Kr, það tvennt sem gerir menn að marktækum bloggurum, að spyrja hvort fólk hafi tekið lyfin sín, og segja að það sé heimskt. Því miður, þú fellur á prófinu, það vantar hjá þér helminginn.

Hilmar (IP-tala skráð) 7.9.2015 kl. 11:46

18 identicon

Óskar og Hilmar. Þeir sem vilja láta taka sig alvarlega vitna í heimildir. Þá er hægt að taka málefnalega afstöðu til þess sem fjallað er um. Að þýða einhverja grein þar sem nafn höfundar kemur ekki fram er ekki sérlega málefnalegt. Valdimar hefur kannski skrifað hana sjálfur.

Jónas Kr (IP-tala skráð) 7.9.2015 kl. 13:39

19 identicon

Þeir sem eftir eru á mogga-blogginu eru ekki sérlega málefnalegir eða færa rök fyrir máli sínu. Þeir njóta velvildar hér vegna þess að þeir reyna að endurskrifa margt en þegar hlutirnir eru skoðaðir hvað varðar heimildir þá stenst stundum ekki steinn fyrir steini. Enda eru þeir oft svo hlægilegir með trúðs eða jafnvel Gosanef hvað áræðanleika varðar. Áróðursmaskínan er oft í formi ískurs úr riðgaðri þvottavél. Einar Karl þín skif eru umhugsunar verð hvað orðræður varðar.

Margrét (IP-tala skráð) 7.9.2015 kl. 18:52

20 Smámynd: Hrólfur Þ Hraundal

Íslam bíður uppá að hinir verri ráði meiru þeir skárri. Sé það rétt að Íslamismi sé trúarbrögð, þá er kommúnismi og nasismi það líka, því þessi kerfi virka öll eins. 

Ég hef ekki orðið var við hatur á síðum Halldórs og Valdimars en gagnrýni sést þar og að því er mér virðist þá oftast með réttu. 

Það er hinsvegar nokkuð um hatur á þessari síðu og sjálfsagt fátt við því að gera þar sem kommúnistar  sem og Íslamistar eru ónæmir fyrir rökum er varða öfga í trúarbrögðum þeirra, en líka af virðingu fyrir mál frelsinu sem síðuhafa og skástýfum hans virðist vera nokkuð í nöp við.

Hrólfur Þ Hraundal, 7.9.2015 kl. 18:58

21 identicon

Njasisti, rjasisti, fjasisti!

Hversu mikill aumingi getur einn maður orðið?

ocram (IP-tala skráð) 7.9.2015 kl. 19:07

22 identicon

Komið þið sæl - sem jafnan !

Jónas Kr. !

Veraldarsagan ÖLL: ætti að vera sá brunnur heimilda, sem byggja má á - eða, ........ er þér nokkrum vandkvæðum bundið, að fletta upp í Gogglara (Google) leitarvélinni eða Wíkipedíu, eða á öðrum miðum, Jónas minn ?

Ég hefi ekki - nema mjög takmarkað veggpláss, fyrir bókaskápa. og aðrar þessháttar geymzlur aukinheldur: Jónas Kr.

Þá: er þakkarvert, innlegg Hrólfs Vélfr., ekki síður en annarra hófsamra, hér á vefnum, þrátt fyrir nokkra hugmyndafræðilega gjá, milli okkar Hrólfs, á öðrum sviðum svo sem, gott fólk.

ocram: (kl. 19:07), virðist nú vera á mörkum brjálsemi / eða einhvers lags firringar, blessaður/ eða blessuð manneskjan: sú.

Hann (ocram): hefði getað sparað sér ómak, að nokkru.

Hinar sömu kveðjur - sem seinustu, vitaskuld /

 

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 7.9.2015 kl. 19:22

23 Smámynd: Einar Karl

Það er hinsvegar nokkuð um hatur á þessari síðu

segir Hrólfur Hraundal.

Hvar sérð þú merki um hatur á þessari síðu, Hrólfur??  Geturðu nefnt eitt dæmi?  Lastu pistilinn minn??

Einar Karl, 7.9.2015 kl. 22:31

24 Smámynd: Jóhann Kristinsson

Sé ekkert hatur á þessari síðu, bara mismunandi skoðanir á málefnum.

Kveðja frá Houston

Jóhann Kristinsson, 8.9.2015 kl. 16:11

25 identicon

Einar Karl gjaldfellir fyrst og síðast sjálfan sig með því að kalla þá menn "rasista" sem vara við útbreiðslu Islam.

Rasismi, eða kynþáttahatur, á ekkert skylt við andúð hugsandi manna á framkomu múslima - enda er Islam ekki bundinn við neinn sérstakan kynþátt.

Í þessu sambandi er rétt að benda uppvakningnum Einari Karli á þá staðreynd að Angola var fyrsta ríki heims - nú á dögunum - til þess að banna Islam og gefa tilskipun um að allar moskur í landinu yrðu jafnaðar við jörðu, á þeim forsendum að Islam væri ekki trúarbrögð heldur hryðjuverkasamtök.

Hilmar Hafsteinsson (IP-tala skráð) 9.9.2015 kl. 20:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband