8.2.2009 | 23:37
Er hægt að ýta á 'IGNORE' ?
Það væri nú líkt þjóðinni að láta þetta mál fá alla athygli og umræðu næstu vikuna eða vikurnar. Þetta verður svona hálf-vandræðaleg og alltof langdregin lokaorrusta, eins og í 'Lord of the Rings II' eða 'Highlander' myndunum með Christopher Lambert. Þar var söguhetjan líka ódauðleg.
Í fyllstu alvöru, það má ekki láta umræðuna næstu daga snúast bara um þetta, fjölmörg erfið verkefni krefjast athygli og orku. Peningamálastefnunni er hvort eð er stýrt af IMF, svo hvort Kölski fái að sitja áfram í sínu fallna hásæti einhverjum mánuðum lengur eða skemur skiptir ekki öllu máli.
Lýsir miklum vonbrigðum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkar: Viðskipti og fjármál, Bloggar | Breytt 10.2.2009 kl. 08:58 | Facebook
Athugasemdir
Góður punktur. Þetta er fyrst og fremst sýndarmennska og hefur mjög lítið með raunverulega vandámál að gera. Held reyndar að Kölski sé ekki á þeim stað sem þú telur - frekar hjá Fed'inu :)
Sveinn Tryggvason, 8.2.2009 kl. 23:51
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.