10.5.2009 | 13:57
Hvað hugsuðu gestirnir??
Er ekki fullt af fólki á Kjarvalsstöðum klukkan tvö á laugardegi? Það er eiginlega óhugsandi annað en að nokkur fjöldi fólks hafi tekið eftir því að eitthvert "skuggalegt" par taki niður málverk og labbi með það út?! (Það skal þó tekið fram að myndin er bara 61x41,5 cm, en þó stærri en svo að maður feli hana undir kápufaldinum.)
Hugsa allir "það hlýtur einhver annar að eiga að sinna þessu".
Voru þetta ekki háskólanemar í félagsfræði að gera tilraun og kanna afskiptaleysi fólks og hæfileikann til að horfa fram hjá óþægilegum og undarlegum atvikum?
Myndin Á Hulduströnd eftir Jóhannes Kjarval
Stálu verki eftir Kjarval | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Löggæsla | Aukaflokkar: Fjölmiðlar, Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.