22.10.2010 | 23:43
Virðing
Þú verður að passa að stuða ekki fólk með þessu trúartali, sagði trúnaðarvinur við mig. Ég vona svo sannarlega að ég hafi ekki gert það, með pistlum hér, eða kommentum og gagnrýni á Þjóðkirkju og þjóna hennar annars staðar. Það er mér ekkert gamanmál að opinbera mig með þessum hætti, mínar skoðanir og lífsviðhorf um viðkvæm mál. En í mínum huga snýst umræðan um virðingu. Ég fer einungis fram á að mínum grundvallarlífsviðhorfum sé sýnd sama virðing og ég sýni slíkum viðhorfum annarra. Allt sem þér viljið að aðrir menn gjöri yður, það skuluð þér og þeim gjöra sagði vitur og góður maður.
Meira HÉR
Meginflokkur: Trúmál og siðferði | Aukaflokkar: Mannréttindi, Trúmál, Vinir og fjölskylda | Breytt 23.10.2010 kl. 00:16 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.