7.4.2014 | 22:41
Þrálátur misskilningur
Hann er þrálátur þessi misskilningur að fólk borgi sóknargjöld til trúfélaga. Það borgar enginn sóknargjald beint til trúfélags. Trúfélög fá sóknargjöld greidd úr ríkissjóði.
Þessi stutta frétt úr Fréttablaðinu ætti því með rétta að segja: Ríkissjóður greiðir sóknargjöld til Krossins fyrir 30% fleiri félaga nú heldur en 1999.
Þannig fékk sértrúarsöfnuðurinn Krossinn 4.3 milljón króna framlag úr ríkissjóði árið 2013 í gegnum sóknargjaldakerfið.
Meginflokkur: Trúmál | Aukaflokkar: Fjármál, Mannréttindi, Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:26 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.