27.5.2014 | 23:51
Ókeypis lóðir til trúfélaga - hversu margar í viðbót?
Hvaða eiga mörg af öllum opinberlega skráðum og viðurkenndum trúfélögum og lífsskoðunarfélögum eftir að sækja um lóð í sínu sveitarfélagi til að byggja félagsaðstöðu, og eiga samkvæmt lögum rétt á á að fá úthlutað, ókeypis.
Trúfélag / Fjöldi félaga / sem ríkið greiðir fyrir sóknargjöld
Óháði söfnuðurinn | 3.312 | 2.633 |
Fríkirkjan í Hafnarfirði | 6.221 | 4.561 |
Sjónarhæðarsöfnuðurinn | 57 | 39 |
Vottar Jehóva | 688 | 544 |
Bahá'í samfélagið | 399 | 317 |
Ásatrúarfélagið | 2.382 | 2.122 |
Krossinn | 601 | 489 |
Kirkja Jesú Krists hinna síðari daga heilögu | 185 | 149 |
Vegurinn | 632 | 479 |
Orð lífsins | . | . |
Kletturinn - kristið samfélag | . | . |
Búddistafélag Íslands | 964 | 743 |
Fríkirkjan Kefas | 121 | 94 |
Fyrsta baptistakirkjan | 26 | 20 |
Félag múslima á Íslandi | 481 | 317 |
Íslenska Kristskirkjan | 273 | 206 |
Boðunarkirkjan | 119 | 103 |
Samfélag trúaðra | 32 | 26 |
Zen á Íslandi - Nátthagi | 111 | 103 |
Betanía | 185 | 141 |
Rússneska rétttrúnaðarkirkjan | 563 | 438 |
Serbneska rétttrúnaðarkirkjan | 276 | 202 |
Fjölskyldusamtök heimsfriðar og sameiningar | 21 | 17 |
Reykjavíkurgoðorð | 26 | 25 |
Heimakirkja | 91 | 89 |
SGI á Íslandi | 165 | 138 |
Menningarsetur múslima á Íslandi | 360 | 237 |
Kirkja hins upprisna lífs | 35 | 33 |
Alþjóðleg kirkja Guðs og embætti Jesú Krists | 31 | 27 |
Catch The Fire (CTF) | 206 | 153 |
Vonarhöfn | 26 | 20 |
Himinn á jörðu | 39 | 39 |
Bænahúsið | 38 | 26 |
Emmanúel baptistakirkjan | 26 | 20 |
Hjálpræðisherinn trúfélag | 42 | 30 |
Ísland kristin Þjóð | 16 | 15 |
Zuism | 2 | 3 |
Siðmennt | 612 | 585 |
Endurfædd kristin kirkja | 1 | 1 |
Postulakirkjan Beth-Shekhinah | 20 | 19 |
Meginflokkur: Trúmál | Aukaflokkar: Stjórnmál og samfélag, Sveitarstjórnarkosningar | Facebook
Athugasemdir
Það er rétt að taka fram:
Það er sjálfsagt og eðlilegt að sveitarfélög liðsinni mannbætandi félagsstarfi, hvort sem það eru íþróttafélög, góðgerðarfélög, hjálparsveitir eða trúfélög. Ég efast um að Landsbjörg þurfi að greiða háar upphæðir fyrir lóðir undir starfsemi sína. Svo ekki sé minnst á íþróttafélögin. Auðvitað eiga múslimar að fá byggja sér hús undir sína starfsemi! Alveg eins og Kiwanis, Lions, KFUM, karlakórar o.fl. hafa byggt sér félagsaðstöðu. Múslimar eru búnir að bíða í 14 ár eftir eðlilegri afgreiðslu borgarinnar.
Ef Framsóknarflokkurinn vill beita sér fyrir breytingu á lögum um skyldur sveitafélaga gagnvart trúfélögum ætti flokkurinn endilega að taka það upp á ALÞINGI. Samtímis ætti að endurskoða úthlutun "félagsgjalda" til allra skráðra trúfélaga beint úr ríkissjóði í formi sóknargjalda. Ef flokkurinn ætlar á annað borð sína jafnræði og réttsýni í þessari nýju stefnu sinni gagnvart trúfélögum.
Það á að leggja niður forréttindi trúfélaga - sérstaklega Þjóðkirkjunnar - umfram önnur félög í landinu.
Einar Karl, 28.5.2014 kl. 09:55
Ef allir á Íslandi stofna einstaklingstrúfélag í eigin nafni, til að tilbiðja/virða heilagan góðan almáttugan anda, þá er kannski komin lausn á bæði trúardeilum og lóðaokri?
Það yrði trúlega friður og frelsi, í anda frelsarans margumrædda?
Spurning hvort guðlausu hræsnara-bankarnir/sjóðirnir á Íslandi þyrftu ekki taka upp siðmenntaða og mannúðlega viðskiptahætti? Þ.e.a.s. ef á að reisa eitthvert smá andans/líkamans hugleiðsluafdrep/veðraskjól á lóðinni?
Siðaskipti óskast.
M.b.kv.
Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 28.5.2014 kl. 10:34
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.